Bloggsíða Helgu Hrannar

Velkomin á bloggið mitt

06.08.2008 17:28:48 / reynalds

Aðeins að prófa

Já hef verið að blogga á mbl en er að hugsa um að færa mig.  Er ósátt við þá síðu, allt svo hægt, gengur illa að setja inn myndir og tekur óþarfa langan tíma að gera margt þar. 
Bara aðeins að kanna þessa síðu aftur ,.....kemur svo í ljós hvað ég geri.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 18:15:55 / reynalds

Á ég að skipta?

Á ég að færa bloggið mitt?

Er orðin svolítið þreytt á þessu bloggi, það er svo oft bilað.  Alla vega er ég búin að gera nýtt á blog.is og ætla að prófa það.  Sé svo til hvað ég geri, en alveg er það týpíkst að þegar ég ætla að skipta þá er búið að breyta miklu hér og auðvelda bloggið. 

slóðin á hina
er : http://reynalds.blog.is/blog/reynalds/
kv. Ég

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 20:12:27 / reynalds

Best að hlýða stóru systu :)

8|Já maður verður nú að blogga fyrst að það er verið að "reka" á eftir manni......nei, nei skil það vel , finnst svo gaman að lesa blogg þar sem mikið er skrifað.

Það er nú ekki mikið að frétta héðan, er búið að vera mikil veikindi hér.  Já bara algjört flenskubæl 8|

Ég var veik í þar síðustu viku í tvo daga, var með einhvern svima.  Í síðustu viku veiktist ég svo aftur , fékk kvef, beinverki og hita.  Var þá heima í 1 og hálfan dag, fimmtudag og föstudag.  Aron Ingi var líka slappur og var heima með mér 1 dag, föstudaginn.  

Við vorum svo orðin þokkalega hress á laugardaginn, ákváð ég því að mála herbergið hans Arons Inga.  Fórum í Byko og hann valdi sér lit á einn vegg, RAUÐAN, kemur mjög vel út (myndir á barnalandi). 

Fórum í afmæli til Stefáns á sunnudeginum og svo um kvöldið byrjaði Aron Ingi að æla, já kominn með ælupestina.  Tobbi ákvað að vera heima á mánudeginum og því átti hann vaktina um nóttina og var nóg að gera hjá honum.  Guttinn ældi eins og múkki og svo bættist við það niðurgangur......Tobbi var alveg kominn að því að vekja mig en sleppti því, það var sko nóg að gera hjá honum, þrífa, skola krakkann, skipta um föt og fleira.........þegar ég vaknaði sváfu feðgarnir í sófanum og það var komið fjalla af þvotti inn á klósetti :D Ákvað að vera voðalega góð við kallinn og setti í eina vél áður en ég fór að vinna.  Feðgarnir voru hálfslappir þegar ég kom heim, Aron Ingi með hita en Tobbi slappur af svefnleysi.  Aron Ingi var orðinn nokkuð hress um kvöldið en ákvað að halda honum heima í dag þar sem hann var með mikinn hita í gær.  Enda finnst mér að foreldrar eigi að gefa börnunum sínum tíma og í því felst meðal annars að gefa þeim tíma til að jafna sig eftir veikindi og ekki að vera að stressa sig í vinnuna, enda er það svo að enginn er ómissandi í vinnunni.  

Við erum búin að vera hér heima í allan dag, ég að þrífa eftir alla æluna en Aron Ingi bara dundað sér, horft á tv, teikna og kubbað, hann er orðinn svo rólegur þessi elska og duglegur að dunda sér einn. Svo er hann alltaf að verða duglegir að bjarga sér.  

Já vonandi er þetta komið í bili, er orðin hundleið á þessum veikindum, ég tek allt og meira til, vonandi fer það batnandi.  

Þá er það vinna á morgun og mikið verður gott að komast út.

jæja nóg í bili

kveðja

Helga Hrönn  


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 14:50:08 / reynalds

Árið 2007 - seinni hluti

Ágúst

Fórum á Neistaflug.  Tjölduðum í garðinum hjá Tryggva bróður.  Mamma, pabbi, Gunnar og Klara komu líka.  Bara fínt þarna, langt að keyra en það var mun skemmtilegra núna en síðast þegar við fórum.

Komu heim strax eftir versló.  Tókum því rólega hér heima, málaði svalarglugga og dittaði smá að hér heima.  Tobbi byrjaði að vinna eftir versló en ég byrjaði 15. Ágúst. 

Jóhanna vinkona varð 25 ára.  

September

Skruppum í sumarbústað í Brekkuskóg.  Seint í mánuðinum eða Þann 21 átti ég ömurlegast föstudag í lífi mínu, Lísa konan hans Kára frænda dó , blessuð sé minning hennar, og svo lá frændi minn, hann Þorsteinn þungt haldi á gjörgæslu LSP og fór ég á bænastund.  Hann er núna allur að hressast, sem er algjört kraftverk eftir þessi svakalegu veikindi. 

Október

Já þetta er svolítið skondið ég man bara minna eftir því sem nær dregur J Man ekkert hvað við gerðum í þessum mánuði , sennilega hefur lífið bara gengið sinn vanagang.  Já ég kláraði næstum því að versla jólagjafirnar.

Skruppum eina nótt í bústað til Gunnu Möggu og co. Bara næs að komast aðeins úr bænum. 

Endilega ef ég er að gleyma einhverju hér  þá láta vita.  

 Nóvember

Aron Ingi byrjaði í sjúkraþjálfun, eftir hreyfiþroskapróf og fór tvisvar í viku fram að jólum.

Hélt smá stelpupartý, fámennt en afar góðmennt. 

Gunnar Smári bróðir varð 20 ára, fórum norður í afmælið hans.  Það var bara gaman og vá hvað það fór mikið vín í allt þetta lið.  Sennilega mættu um 70 manns og þar sem að ég sá um að blanda bolluna, þá getið þið ímyndað ykkur að það hafi verið nóg að gera...... en maður náði að fá sér smá  líka J

Byrjaði aðeins að skreyta fyrir jólin

Desember 

Já desember var bara rólegur.  Var búin snemma með gjafirnar og var nú eitthvað lítið um bakstur á þessu heimili.  Ákvað að missa mig ekki í þrifaæði en ákvað að bóna stofuna. 

Við vorum þrjú hér heima á aðfangadag og var það bara næs.  Við fórum upp í garð  um 14 og settum kerti á leiðin þar.  Svo var farið heim og byrjað að elda og svo borðað kl.18.  Aron Ingi bara slakur á því en varð pínu stressaður eftir matinn og vildi þá fara að drífa sig í að opna.  Fengum öll alveg frábærar gjafir , takk kærlega fyrir okkur. 

Jóladag var jólaboð, bræður Tobba og fjölskyldur, Kolla tengdó og við.  Það var haldið heima hjá Árna og Jórunni þetta árið.  Allir komu með eitthvað á veisluborðið og var þetta mjög fínt.  Sniðugt að hafa fyrirkomulagið svona þá þarf engin að hafa MJÖG  mikið fyrir boðinu. 

Annan í jólum skruppum við til Gunnu Möggu og co. Alltaf jafn næs að koma þangað og Kristín Lilja og Aron Ingi eru alveg frábær saman, maður veit bara ekki af þeim. 

Tobbi vann á milli jóla og nýárs en ég og Aron Ingi tókum því rólega.  Hann fór reyndar á leikskólann kl.13 báða daganna, aðallega vegna þess að honum leiddist hér heima og svo nennir hann ekki að snattast með mér í búðir.

Áramótin vorum við hjá Gunnu Möggu og co.  Við borðuðum saman góðan mat og svo var tekið því rólega, horfðum auðvitað á Skaupið og fengum okkur smá öl.  Við skutum lítið upp í ár.  Fórum heim um kl.2. 

Á nýársdag var bara hangið í leti hér heima. 

Nennti ekki að telja upp öll afmælin enda efast ég um að ég geti munað þau öll.  Setti bara inn þar sem um "stór" afmæli var að ræða, þ.e.a.s. 20 , 25,


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 21:39:56 / reynalds

Árið 2007

Árið 2007 – fyrri hluti

Jæja þá er að taka saman gamla árið , var bara nokkuð gott ár.  

Janúar

Tobbi varð 30 ára og héldum við upp á það á A. Hansen.  Tókst veislan mjög vel og fékk hann mikið í afmælisgjöf. 

Í lok janúar keyptum við okkur hjól, Kawasaki Vulcan custom.  Mjög flott hjól. Keyptum líka fjórhjól handa Aron Inga.

Settum Brekkugötuna á sölu.

Sagði upp starfi mínu á sambýlinu.

Febrúar

Já pínu erfitt að rifja upp svona langt aftur J Vorum nokkuð mikið hjá pabba í sumarbústaðnum við bláa lónið og Aron Ingi fór á fjórhjólið þar.

Byrjaði í nýrri vinnu, í grunnskóla.  Ákvað að vinna eina helgi í mánuði á sambýlinu. 

Mars

Tók íbúðina í gegn.  Málaði hana og settum glugga í svefnherbergið.  Kom mjög vel út og gerði rosalega mikið fyrir íbúðina.

Apríl

Seldum á Brekkugötunni um miðjan mánuð og áttum að afhenda 1. Júní.  Já varð pínu stressuð yfir því að vera búin að selja en ekki búin að finna aðra íbúð.  En var ekki lengi að finna aðra og gerðum tilboð í hana sem var tekið. 

Gullmolinn okkar varð 5 ára ...............vá hann er orðin svo stór.  Haldið upp á 5 ára afmælið hans Arons Inga og í síðasta skiptið á þessum stað.  Hann var mjög ánægður með daginn og allar gjafirnar.  Það er svo gaman í afmælum , þá hittir maður alla sína vini og ættingja.

Tobbi keypti sér racer, þannig að ég á Kawann og hann Sukkuna.  

Maí

Fluttum í nýju íbúðina og gekk allt vel.  Mikið svakalega var gott að komast í stærra.  Skil bara ekki hvernig við gátum verið í svona litlu húsnæði. Aron Ingi alveg alsæll og hrikalega ánægður með herbergið sitt og gluggannJ Tobbi eignaðist loksins skúrinn sinn.........:)

Júní

Lok maí eða byrjun júní flutti Gunnar Smári bróðir og Klara inn til okkar.  Það var bara æði og áttum við frábærar stundir saman, þau fluttu svo aftur "heim" í lok júni. 

Fór í sumarfrí frá skólanum en leysti forstöðumanninn af á sambýlinu.  Vorum ennþá að koma okkur fyrir og tók því svo bara rólega. 

Keyptum okkur gamlan tjaldvagn og fórum í fyrstu útileguna, fórum á Laugarvatn og kíktu Sibba og Friðgeir.  Fengum geggjað veður, 20 stiga hita og sól.

Fór í fyrst langa hjólarúntinn minn.  Hjólaði með Dóra, bróður Tobba á krókinn.  Tobbi var þar að gera við hjólið sitt og svo hjóluðum við öll á Akureyri, kíktum á hjólasýninguna og í kaffi til tengdó.

Júlí

Ditta systir varð 35 ára.

Loksins kom að því að fara í sumarfrí......það var æði.  Fórum á ættarmót á Súðavík og var það mjög gaman og fengum við æðislegt veður.  Um 18-20 stiga hiti og sól.  Flökkuðum svo um vestfirði með mömmu og pabba, og Dittu og co.  Alveg frábært ferðalag.

Keyptum okkur nýjan bíl, Ford Escap 2004, alveg hrikalega ánægð með hann.  Fórum svo í ferðalag á honum, fyrst með Jóhönnu og co, og svo með mömmu og pabba. 

 

Kem með seinni hlutann við tækifæri 

kveðja

Helga Hrönn


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 17:36:50 / reynalds

Gleðilegt nýtt ár

Gleðilegt nýtt ár og kærar þakkir fyrir það gamla :D

Kem með smá pistil seinna.....hafið það gott

kveðja

Helga Hrönn


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.12.2007 11:42:23 / reynalds

Betra seint.....

........en aldrei. 

Já ég ætlaði sko að blogga aftur fyrir jól en gleymdi því, hér kemur því smá jólakveðja :D

Gleðileg jól og farsælt komandi ár.  Þakka vinum og ættingjum fyrir frábærar samverustundir á líðandi ár.  Hafið það sem allra best, alltaf :D

kveðja

Helga Hrönn og strákarnir.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 16:02:14 / reynalds

Allt rólegt hér.....

Já það er bara allt rólegt á þessum bæ og í raun bara beðið jólanna.  Ég er búin að öllu , nema versla í matinn og svo þarf ég aðeins að renna yfir hér rétt fyrir aðfangdag.  Ég bakaði nú ekki mikið, mútta kom aðeins í heimsókn á laugardaginn og hrærði hún í uppáhaldskökurnar mínar (engiferskökur) og svo bakaði ég þær alein þegar hún var farin aftur norður, restin verður bökuð í búðinni....hehehehe.  

Núna er jólafríið mitt alveg að fara að skella á, byrja á fimmtudaginn og byrja svo að vinna aftur 4. jan.  HHHOOOO hvað það verður næs, sofa út , dúlla sér hér á morgnanna með Aron Inga og svo bara tekið því rólega út í eitt.  Það er eitt sem ég verð að gera áður en ég byrja aftur en það er að taka til í þessum geymslum mínum.  Ég ætla að setja niður í geymslu það sem er ekkert notað og svo ætla ég að geyma jóladótið í geymslunni hér uppi......er ekki að nenna að labba með það upp á fjórðu hæð fyrir hver einustu jól.......held að þetta sé besta lausnin.....annars verður þessu bara hent niður.   

Við ætlum að vera hér heima um jólin, bara þrjú en munum að sjálfssögðu hitta skyldfólk en við munum borða þrjú saman og opna pakkanna.  Ég hlakka mikið til en verð að viðurkenna að ég kvíði líka smá.......finnst vanta svo mikið þegar öll mín fjölskylda er annars staðar en maður verður að fara að skapa sér sína hefð.  Svo er aldrei að vita nema maður skelli sér norður milli jóla og nýárs .......annars er líka hægt að keyra báðar leiðir......hehehehehehe........mátti til að skjóta pínu......þannig að ef einhverjum dettur í hug að skreppa suður þá er þeim velkomið að gista hjá mér.........:haha:  Kannski að maður dobbli múttu og pabba næstu jól.....blikk...blikk ;)  En það er rúmlega ár í þau næstu þannig að það liggur nú ekki mikið á.

Aron Ingi er alltaf í sjúkraþjálfun og gengur það mjög vel.  Hann er svo fljótur að læra þessi elska.  Hann er búinn að vera alveg frábær í des, ekkert stress í honum og hann passar sig sko á því að vera stilltur.  Þetta er bara æði, hann er svo fljótur á fætur á morgnanna, vanalega er hann frekar lengi að fara á fætur og finnst honum einstaklega gott að kúra en núna er hann sko snöggur.......bara snilld. 

Mikið er ég fegin því að vera uppi en ekki á jarðhæð.....8|Málið er að Tobbi skrapp smá út á föstudaginn og það er alveg merkilegt hvað ég er myrkfælin.  Já ég dreg það eins lengi og ég get að fara upp í rúm, sofna á sófanum og reyni að sofa þar eins lengi og ég get.  Þó svo að þetta sé alveg geggjaður sófi þá get ég ekki sofið mjög lengi í honum.......kannski að aldurinn sé farinn að segja til sín.....en alla vega kvartar hann eftir mikinn svefn þar.  Svo að ég druslaðist upp í rúm um 1.30.  Ég hafði kveikt frammi á gangi og svo kveikti ég líka á lampanum inn í herbergi.....ég var alltaf að vakna og mátti ekkert heyra.....shit hvað þetta er óþægilegt :$  Ég held líka að heyrnaleysi mitt auki á myrkfælnina, þar sem að ég heyri bara með öðru þá átta ég mig ekkert á þvi hvaðan hljóðin koma......ættu að sjá mig stundum þegar ég er að leita af símanum mínum´.......hehehehe.  En já ég gat þó huggað mig við það að alveg sama hvað hljóð ég heyri þá væri enginn fyrir utan gluggann minn.....hehehehe.

Jæja þá er ég búin að skrifa smá.....veit ekkert hvað ég get sagt meira en ég ætti að geta bloggað fyrir jól..........þangað til næst......hafið það gott og ekki láta stressið fara með ykku

 kveðja

Helga Hrönn 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 13:15:38 / reynalds

Hræðsla, stuð og MIKILL pirringur

Já þá er  það taka tvö...þrjú.....fjögur......var búin að skrifa heilan helling en glataði öllu.

Aron Ingi fór á Krókinn á fimmtudaginn.  Ég flaug með hann, keypti svona "pabbahelgar"flug.  Þá flýg ég með hann og fer svo strax aftur til baka......svaka sniðugt....það fannst mér alla vega þá.  Flugtakið gekk bara vel og fyrstu 25 mín. en svo fór vélin(rellan) að hristast alla verulega.  Ég reyndi að láta ekkert á því bera að ég væri að "drepast" úr hræðslu nema það að ég tók utan um gullmolann minn.  Ég spurði hann hvort að það væri ekki allt í lagi en þá svaraði hann "mér er illt í maganum"....ég greip ælupokann og hafði hann tilbúinn.  Svo tók vélin að hrista vel og "hoppa", þá spurði ég hann hvort að það væri ekki allt í lagi en þá heyrðist í mínum "ég er hræddur" .....þegar ég leit á hann var hann mjög fölur og farinn að svitna:cry: Þarna sat ég í einhverri hel.... rellur og hugsaði með mér " hvað í and.... er ég að gera hér með gullmolann minn?"....þetta geri ég sko ekki aftur á næstunni.  Lendinginn hjá þessu flugmanni var ferleg og hef ég sjaldan lent í svona lendingum.  Ég var nú ekkert rosalega spennt að fara aftur til baka...hugsaði með mér ......ooohhhh ég vildi að ég gæti keyrt til baka.  En það var nú ekki í boði í því var farið aftur í vélina.  Mikið var ég fegin þegar ég lenti og komst í bílinn minn.  Mamma bauð aron Inga að vera fram á föstudag og var ég mjög fegin því, hann kemur þá heim með bíl.....og við þurfum ekki að skröltast í þessari rellu......held að hann sé jafn feginn og ég.  Þetta er líka frábært fyrir hann að hafa tækifæri til þess að vera hjá ömmu og afa , honum finnst það sko ekki leiðinlegt.  Hann var ný búinn að spyrja mig hvenær það væri frí næst og fékk hann sitt kærkomna frí.  Sakna hans alveg hrikalega mikið og verð að viðurkenna það að mér leiðist þegar hann er ekki hér.  Við erum samt búin að slaka vel á og haft það kósý um helgina. 

Á föstudagskvöldið hélt ég stelpupartý fyrir ákveðin vinahóp, get því miður ekki haldið fyrir alla í einu, svo að ég vonast til þess að engin móðgist.  Gunna Magga, Arndís, Sibba og Inga komu, því miður komustu ekki allar.  Við sátum , borðuðum , spjölluðum mikið og auðvita var fengið sér í glas.  Þegar það er svona gaman er tíminn ALLTOF fljótur að líða og áður en við vissum af var kl að ganga tvö, því var ákveðið að skella sér á Von á Players.  Arndís fór heim en við hinar skelltum okkur á ball, skemtum okkur vel og var maður komin heim um 5.  Við verðum að endurtaka þetta á næsta ári, er það ekki?  Takk kærlega fyrir frábært kvöld. 

Að lokum langar mig að ræða pirringinn minn , en hann er um störf þroskaþjálfa og virðingarleysi gangvart þeim.  Málið er að ég vinn í grunnskóla og deildarstjórinn minn þar segir að hann megi alveg setja mig í kennslu vegna þess að ég sé með undirbúningstíma eins og kennarar (100% starf þroskaþjálfa eru 30 kennslust, en kennara 26).  Þó svo að allur minn undirbúningstími (er í 80 %vinnu) fari í að undirbúa kennslu , sér hann ekkert athugavert við það.  Á móti kennslunni á ég líka að vera með félagshæfnisögur, málþjálfun, sjálfsstyrkingu og margt fleira. Því hef ég yfirdrifð nóg að gera við minn undirbúningstíma og gæti sko nýtt hann í mitt fag en nei er því miður ekki að ná að undirbúa mitt faglega starf nógu vel sökum kennslu.  Er ógeðlega fúl yfir þessu, er búin að hafa samband við félagið mitt og þar er það skýrt að undirbúningstíminn minn á að fara í mitt faglega starf og í það sem ég er menntuð í.  Ég fór því og talaði við Skólastjórann (sem er mágkona deildarstjórans) og byrjaði á því að spyrja hana hreint út hvernig hún sæi starf þroskaþjálfa fyrir sér og hvað hún teldi að við gerðum.  Hún gat ekki svarað þessu, heldur snéri spurningunni til baka á okkur (vorum tvær) og bað okkur um að segja sér hvað við værum að gera:^) Við útskýrðum það.  Þegar við fórum að ræða undirbúningstímann , þá bara var hún ekki að ná því sem við vorum að meina og var sammála deildarstjóra.  Svo þegar ég sagði við hana að ég hefði haft samband við félagið varðandi þetta og þetta væri ekki leyfilegt, svaraði hún að þá væri greinilega ekki verið að ráða réttu stéttina inn í skólannn og kannski þyrfti að endurskoða það!!!! Shit það sauð á mér, en sýndi það ekki .  Þvílíkt og annað eins virðingarleysi, þar sem að við neitum að eyða undirbúningstíma okkar í að undirbúa kennslu og vilju helst ekki kenna mikið heldur einbeita okkur að okkar faglega starfi, erum við bara óþörf.  En hvað mér allt það sem við getum gert fyrir þessa krakka?  Félagslega þáttinn, sjálfstyrkingu, málörvun og margt fleira.  Skiptir það minna máli?  Eiga þessir krakkar ekki rétt á fjölbreyttri þjónustu ?  Hvort skiptir meira að máli að geta lesið upp á 9.5 eða að læra félagsleg samskipti? Svo er annað sem sýnir þetta virðingarleysi, um helgina var ég að skoða atvinnuauglýsingar og þar sá ég eina frá skóla hér í Hafnarfirði, hún var á þessa leið:  Þroskaþjálfi eða áhugasamur stuðningsfulltrúi í sérdeild.  Með allri virðingu fyrir stuðningsfulltrúum , en þeir eru ekki þroskaþjálfar og nám þeirra mun minna.  Þroskaþjálfanámið er þriggja ára háskólanám og jafn virðingarvert og kennaranámið.  Væri gaman að sjá auglýsingu á þessa leið:  kennari óskast í sérdeild eða áhugasamur stuðningsfulltrúi. Já nokkuð viss um að þetta mundu kennarar ekki vilja og yrðu mjög ósáttir við þetta.  En er það eitthvað öðruvísi að þeir fylli stöður kennara eða okkar þroskaþjálfa ?  Nei það tel ég ekki , við erum sérmenntuð á þessu sviði og því á auðvitað að auglýsa eftir fagfólki í þessar stöður, til að veita sem besta mögulega faglega þjónustu.   Annað sem ég sá fyrir nokkru var grein í mogganum um sérdeild og einstakling með sérþarfir.  Þar var talað um þroskaþjálfann, hvað hann ynni nú gott starf með drengnum.  Oft og mörgum sinnum var talað um hana sem þroskaþjálfa sem starfaði sem stuðningsfulltrúi drengsins.  Sem sagt þroskaþjálfi en samt stuðningsfulltrúi.  Hvað er málið , þroskaþjálfi er þroskaþjálfi EKKI stuðningsfulltrúi.  Kennari er kennari EKKI leiðbeinandi, er það ekki?  Vá hvað ég varð brjáluð, hvort að þetta var alfarið komið frá höfundi greinarinnar eða hvort að þroskaþjálfinn hafi talað um sig sem stuðningsfulltrúa , var ég ekki að átta mig á, En ef þetta hefði verið ég hefði ég sko ekki verið glöð og hefði sko gengið úr skugga um að þetta væri allt rétt eða krafist þess að viðkomandi höfundur leiðrétti þetta.  Ef hún er sátt við þetta þá segi ég ekkert annað en SKAMM!!!! jæja er búin að vera um tvö tíma að skrifa þetta, missti þetta nokkrum sinnum ......aaarrrggg! 

Vonandi kom ég þessu nokkuð vel frá mér og á "faglegan" :haha: hátt.  Þangað til næst

kveðja

Helga Hrönn ÞROSKAÞJÁLFI

Eftir allt saman í gær , tókst mér ekki að setja þetta inn , því ákvað ég að skella þessu inn núna J


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 18:13:57 / reynalds

Leti...nenni ekki að blogga en ákvað að skella einum brandara inn

Flugvél flaug í gegnum talsvert óveður. Ókyrrðin var mikil og ekki skánaði ástandið þegar eldingu laust niður í annan vænginn.
Ein kona tapaði sér alveg. Hún stóð upp fremst í vélinni og öskraði "Ég er of ung til að deyja!!".Síðan kallaði hún "ef ég á að deyja núna þá vil ég að síðustu mínútur mínar í þessu jarðlífi verði minnisverðar. Er einhver hér í flugvélinni sem getur
látið mér líða eins og sannri konu?
Það sló á þögn í vélinni og fólkið starði á örvæntingarfullu konuna fremst ívélinni. Þá stóð karlmaður frá Texas upp aftarlega í vélinni.Hann var myndarlegur, hávaxinn og vel vaxinn. Hann gekk rólega fram ganginn og byrjaði að hneppa frá sér skyrtunni, einni tölu í einu. Enginn annar hreyfði sig. Hann fór úr skyrtunni og hnyklaði brjóstvöðvana. Hún tók andköf........

Þá, sagði hann... 
.
.
.
.
.

"Straujaðu þessa og færðu mér bjór".


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 18:59:56 / reynalds

hvað er að ske?????

já það er ansi langt síðan að ég nennti að blogga síðast........ætla því að bæta úr því núna....en það hefur engin gert neina athugasemd við bloggleysinu...:D

jæja það er bara spurning hvar ég ætti að byrja.....??

Tobbi er orðinn stöðvarstjóri á nýrri max1 stöð, mikið að gera hjá honum en hann stendur sig mjög vel.........enda ekki við öðru að búast af honum :D  Við sjáum hann ekki eins mikið hér heima en vonandi er það bara tímabundið......sáum hann í ca. 7 tíma um helgina.  Aron Ingi er svo mikill pabbastrákur því tekur það svolítið á hann að sjá hann svona lítið :cry: ´

Ég er að vinna í skólanum og svo á sambýlinu eina helgi í mánuði.....er að vinna næstu helgi, laugard. 16-23 og sunnudag 9-19..............alveg hryllilega skemmtileg vakt.  Ég hugga mig við það að ég fæ vetrarfrí í skólanum í lok okt. 

Aron Ingi er eitthvað leiður á leikskólanum þessa dagana , veit ekki út af hverju.  Segir alltaf við mig að ég eigi að sækja sig ekki seinna en tvö.  Ég spurði hann að því hvers vegna honum finnist leiðinlegt á leikskólanum , hann svaraði bara vegna þess að það er svo skemmtilegt heima :haha:

Ég málaði alla stofuna síðustu helgi og loksins er ég búin að laga það sem átti eftir að mála betur.  Mikið var ég fegin þegar ég var búin ........frekar erfitt að gera þetta ein....en ég gafst sko ekki upp :D  Skrapp svo í RL-búðina til finna mér veggkertastjaka en fann engan......fór bara út með jóladót:haha: Það var svo gaman að skoða það og hefði ég sko getað keypt mér miklu meira.......en geri það seinna.  Skil ekki hvað er í gangi, mér er farið að hlakka til jólanna, hefur aldrei skeð svona snemma fyrr......get ekki beðið eftir því að fara að skreyta ,,,,,og stefni ég á að skreyta mikið :haha:....vonandi helst jólaskapið fram yfir jólin:haha::D  Er búin að kaupa slatta af jólagjöfum og ætla að klára þær næstu mánaðamót.

Gunnar bróðir var að koma frá London og keypti hann Ipod fyrir mig.........núna upplifi ég mig tölvufatlaða.......kann sko ekkert á þetta :$ Ætli ég reyni ekki að fá Steina eða Ingibjörgu til að kenna mér á þetta við tækifæri.......þau einu sem mér dettur í hug.......maður verður að fara að droppa í heimsókn til Gunnu og co .......og fá aðstoð!!!! Hann keypti líka fm-sendir með honum, og er það algjör snilld.........tengir hann við og þá getur maður bara hlustað á ipodin í útvarpinu, í bílnum eða heima, engir geisladiskar. 

jæja ég nenni ekki að blogga meira núna

endilega kommentið og það er komin ný skoðanakönnun

kveðja

ÉG

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 19:12:58 / reynalds

*Kæri eiginmaður


Kæri  eiginmaður.

Ég skrifa þér þetta bréf því ég hef ákveðið að fara frá þér.

Ég hef verið þér góð eiginkona í sjö ár án þess að það hafi skilið nokkuð eftir.

Þessar síðustu tvær vikur hafa verið algjört helvíti.

Það sem fyllti mælinn var þegar yfirmaðurinn þinn hringdi í dag til að segja mér að þú hefðir sagt upp vinnunni þinni  !!!!

Hvað varstu eiginlega að hugsa ??????

Í alvörunni, bara í síðustu viku komstu heim úr vinnu og tókst ekki einu sinni eftir því að ég hafði  farið í klippingu . Ég eldaði meira að segja uppáhalds matinn þinn og til að reyna að vekja athygli þína klæddist ég glænýjum sexý náttkjól um kvöldið !!!!

Þú hinsvegar komst heim,gleyptir í þig hluta af matnum á innan við mínútu, fórst svo upp í rúm þar sem þú gláptir á fótboltaleikinn í sjónvarpinu eins og þú gerir ALLTAF ....áður en þú steinsofnaðir!!

Þú ert alveg hættur að segja að þú elskir mig og ert líka alveg hættur að snerta mig !

Annaðhvort ertu búinn að vera að halda framhjá mér eða elskar mig hreinlega ekki lengur.

Hver sem skýringin er.....þá er ég farin frá þér.

Ps. Ekki reyna að hafa upp á mér.....því þú verður bara fyrir vonbrigðum því ég og Halldór bróðir þinn

höfum ákveðið að hefja búskap saman.

Vertu blessaður.......!

Þín FYRRVERANDI eiginkona ! 


Sagan endar þó ekki þarna...........

Kæra fyrrverandi eiginkona.

Mig langar að byrja á að segja þér að ekkert hefur glatt mig eins mikið lengi og að fá bréfið frá þér í dag.
 

Það er rétt hjá þér að við höfum jú verið gift í sjö ár en að þú skulir halda því fram að þú hafir verið mér góð eiginkona þessi sjö ár.....er ansi langt frá sannleikanum verð ég að segja.

Rétt skal vera rétt og til að útskýra mína hlið á málunum þá þér að segja  horfi ég svona oft á fótboltann í sjónvarpinu til að losna við þurfa að hlusta á þetta stanslausa röfl í þér út af öllu og öllum ! Verst að það virkar ekki eins vel og ég hefði viljað !

Og bara svo að þú vitir það þá tók ég VÍST eftir því að þú hafðir farið í klippingu í síðustu viku. En málið var að mér þótti klippingin bara svo misheppnuð og hrikalega ljót enda leistu út eins og karlmaður! Og þar sem móðir mín elskuleg kenndi mér að segja frekar ekki neitt ef maður hefði ekkert fallegt að segja.. ....ákvað ég að þegja !

Eitthvað hefur þú svo ruglað mér saman við hann Halldór bróður  þegar þú segist hafa eldað uppáhalds matinn minn því þér að segja hætti ég að borða svínakjöt fyrir rúmum sjö árum síðan !!!

Ástæðan fyrir því að ég fór að sofa þegar þú klæddist nýja sexý náttkjólnum þarna um kvöldið var einfaldlega sú að þegar ég sá verðmiðann aftan á náttkjólnum gat ekki annað en velt því fyrir mér hvort það gæti virkilega verið tilviljun að kjóllinn kostaði 3.999 kr. og að Halldór bróðir hafði fengið lánaðan hjá mér 4 þús. kall fyrr um daginn!!!!!!

En bara svo að þú vitir það þá elskaði ég þig þrátt fyrir allt og vonaðist til að við gætum reynt að laga það sem farið hafði úrskeiðis í hjónabandinu.

Þannig að þegar ég svo uppgötvaði að ég hefði unnið í 572 milljónir í víkingalottoinu í dag ákvað ég að segja upp vinnunni minni og koma þér á óvart með því að kaupa handa okkur tvo miða til Jamaika.

En þegar ég kom heim varst þú farin og mín beið bréfið frá þér.

Ég trúi því að það sé ástæða fyrir öllu.

Ég vona bara að þú finnir þá fyllingu í þeirri ákvörðun sem þú hefur tekið.

Lögfræðingurinn minn hefur tjáð mér að með bréfi þínu hafir þú fyrirgert rétti þínum til lottovinningsins þannig að því miður fyrir þig er hann er alfarið minn.

Vona að þú hafir það bara gott í framtíðinni.

Já og meðan ég man...........er ekki alveg viss hvort ég sagði þér það nokkurntímann en Halldór bróðir er ekki fæddur Halldór....heldur....Halldóra .

Vona að það komi ekki að sök.

Með ótrúlega góðri kveðju frá Jamaika....

Hinn moldríki og frjálsi FYRRVERANDI eiginmaður þinn!

:haha::Dhihihihihihi:D:lol::haha:hehehehehehehe:haha::D8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 19:40:30 / reynalds

Stjörnuspá

.....ekkert verið að skafa utan af því :D  .....verð  nú að segja að ég er nú ekki sammála þessu ....8|


Hrútur (20. mars - 20. apríl):
Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti, góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp  og láta aðra þrífa upp skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og slá tilgangslaus högg útí loftið.Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.

Naut (20. apríl - 21. maí;): Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi  eru það eina sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur  sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.

Tvíburi (21. maí - 20. júní;):
Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað,  með hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við.  Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og óþarfa.

Krabbi (21. júní - 23. júlí;):
Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.

Ljón (22. júlí - 23. ágúst):
 Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.

Meyja (23. ágúst - 23. september
):
Þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki,  en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar  en stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.

Vog (23. september - 22. október):
 Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.

Sporðdreki (23. október - 21. nóvember):
Þú ert frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.

Bogmaður (22. nóvember - 21. desember):
 Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr  einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika  þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.

Steingeit (21. desember - 20. janúar):
Þú ert stífur og vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum,  alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn, enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum og merkjavöru.

Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar):
Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig  eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan  innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.

Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir  ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.
 
 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 20:33:11 / reynalds

Liðin helgi og fl.......

..........ég og Tobbi skelltum okkur í leikhús á föstudaginn.  Sibba okkar passaði Aron Inga og gisti hann hjá henni.  Við byrjuðum á því að fara út að borða og ákváðum að fara á Ask.  Því miður urðum við fyrir smá vonbrigðum með matinn, frekar litlir skammtar og svo vantaði meðlæti með steikinni.......en þetta var samt næs og afslappandi.  Svo var skellt sér í Borgarleikhúsið á Ladda-showið............ó mæ god.............það var bara geggjað :haha:  Hann er alveg ótrúlegur, sýningin vel sett upp og allt var bara brilljant:haha:  Vá hvað við hlógum geggjað mikið, ég var bara að drepast í hálsinum eftir þetta.......mæli með þessari sýningu :haha:  

Við skelltum okkur svo til Lilja , hún hélt bekkjarpartý.  Það voru nú bara "kellur" þar en mikið var gaman að hitta þær og spjalla.  Við vorum komin heim  um 2. 

Svo var bara skellt sér um 11.30 daginn eftir að ná í gullmolann, ótrúlegt hvað maður er háður honum....finnst alveg ferlegt þegar hann er ekki heima.......talandi um að börn verði háð manni, held að maður sé bara ekkert skárri :D Það var sem sagt æði að fá hann heim! 

Ingibjörg og Gunna Magga kíktu seinnipartinn á laugardaginn, færðu okkur blóm og nammi...fyrir pössunina á frosknum, já við pössuðum hann í tvær vikur á meðan þær voru úti. 

Jæja þá styttist í að maður verði árinu eldri :( Sibba kom í heimsókn í gær og færði mér afmælisgjöf...svona aðeins fyrir fram.  Ég fékk hrærivél frá henni, Friðgeir og Helgu Jónu...........alveg geggjað.......þá er bara að fara að vera dugleg að baka og bjóða fólki í kaffi.........maður skellir nú í form fyrir afmælisdaginn.......sem ég segi ekki hvenær er!  TAKK æðislega fyrir mig ELSKURNAR mínar....:haha:

jæja ætla að láta þetta duga í bili

kveðja

Helga Hrönn 


» 9 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 23:08:13 / reynalds

Búið að vera æðislegt sumarfrí......

........og mikið búin að flakka. 

Já maður er ekki búin að vera mikið heima í sumarfríinu sínu.  Það var mikið flakkað og var það ofboðslega gaman en það var líka æðislegt að koma heim til sín :haha:

Ég veit nú ekkert hvað ég á að skrifa hér þannig að ég ætla að skrifa smá ferðasögu :

Við fórum á Vestfirðina og gistum í 8 nætur í tjaldvagninum.  Hann er að koma mjög vel út og þvílíkur munur að vera kominn með hann....hefði sko ekki nennt þessu í tjaldi.  Við fórum á ættarmót hjá Tobbi í Súðavík og var það gaman.  Strákarnir settu legstein hjá pabba sínum þann 13. júli og er hann alveg ofboðslega fallegur.......ég valdi hann fyrir þá og það voru allir mjög ánægðir með hann.  Loksins er kominn steinn hjá honum, hann dó 1980 og allan tímann hefur verið kross.  Svo fórum við öll með styttur og blóm á leiðið.   Við fórum hring og fórum frá Súðavík á Patró og gistum þar í tvær nætur.  Mamma og pabbi, og Ditta og co voru með okkur.  Við keyrðum og skoðuðum mikið m.a. Látrabjarg og Uppsali.  Svo var keyrt í Bjarkarlund og gist það eina nótt.  Svo fóru allir heim til sín.  Við fengum alveg frábært veður , það var smá rigning síðast daginn. 

Við stoppuðum svo heima hjá okkur í ca. 5 daga.  Keyptum okkur nýjan bíl, Ford Escape 2004, sé nú soldið eftir focus enda búinn að reynast okkur alveg frábærlega.  Það skeði nú eitt soldið skondið þegar við vorum að vesenast í þessum bílakaupum og er það alveg týpískt fyrir mig.......það var þannig að ég ætlaði að prufa græjuna og skreppa á honum með spilar í viðgerð og fór Sibba með mér.  Tobbi segir í ganni við mig áður en ég fer; klesstu nú ekki bílinn!  Ég keyri af stað og á fyrsta hringtorginu hér , sem er bara mínútu í burtu var keyrt aftan á mig !!!!!!  Já vá hvað mér brá....ætlaði sko út og láta þann sem keyrði á mig heyra það....en það var bara stelpuskotta sem keyrði og var hún grátandi, þannig að ég æsti mig ekkert :$  Guð ég var svo fegin því að hafa ekki keyrt aftan á fíflið sem að bremsaði niður og beygði án þess að gefa stefniljós.........en svo bara BÚMM!  Beislið á bílnum skemmdist og stuðari rispaðist og verður gert við þetta seinna í mán.  Tobbi hringdi í Brimborg þar sem að við vorum ekki búin að kaupa bílinn og sagði þeim frá þessu.  Það var sko ekkert mál og spurðu þeir hvort að það væri ekki í lagi með alla? og hvort að við vildum hætt við kaupin?   En nei, nei við keyptum hann :P

Svo var farið aftur í ferðalag.  Fórum með Jóhönnu og co og gistum eina nótt á Snæfellsnesinu.  Mamma og pabbi komu líka.  Jóhanna og Halli fóru heim daginn eftir en við hin héldum áfram að flakka.  Skoðuðum við okkur um og svo var gist á Grundarfirði.  Svo skruppum við í Stykkishólm og farið í heimsóknir.  Næst átti að keyra í Fosstún í Borgarfirðinu, en þar var allt fullt, þá var ákveðið að keyra í Varmaland en þar voru bara unglingar og leyst okkur ekkert á það né aðstöðuna.  Þá átti að gista rétt hjá Hreðavatnsskála en þar var líka allt fullt.  Þannig að við enduðum á Borðeyri.......flott aðstaða þar og allt til fyrirmyndar á því tjaldstæði.  Svo var farið á Krókinn.  Við hjálpuðum pabba að slá í Bólu og vá shit hvað það var mikið gras...hélt að ég mundi syngja mitt síðasta við að raka og fara með allt í hjólburum í skurðinn...en  nei þeir sem að þekkja mig vita að ég gef mig ekki og kláraði sko allt ......var vel þreytt á eftir. 

Við stoppuðum á Króknum í um 4 daga.  Á fimmtudegi fyrir versló fórum við á Mývatn og voru Gunnar og Klara með okkur.  Þar gistum við eina nótt.  Svo var keyrt á Neskaupstað og vorum þar um versló.  Það var mjög fínt, gott veður...lítil sól en engin rigning og vel heitt.  Ég skellti mér á Tínu Turnar-showið og það var geggjað , svo var djammað smá.  Fór með Rósu og Klöru.  Tobbi fór svo á djammið á laugardagskvöldið en ég ákvað að vera bara "heima". Við keyrðum svo alla leiðina heim á mánudeginum og vorum við komin heim kl. 3 aðfaranótt þriðjudags.......alsæl með að vera komin heim. 

Dagarnir sem við erum búin að vera heima hafa farið í að gera ekki neitt, bara næs.  Jú ég hafði það af að mála gluggana og svalahurðina í gær.  Ég fer að vinna á miðvikudaginn og ætla ég að nota mán og þriðjud í að "rétta" Aron inga af.......hann er svo mikið yndi þessi elska...hann hefur sofið lengst af okkur í fríiun og þurftum við mörgum sinnum að vekja hann.  Það þar því að rétta hann af rólega.....vakti hann í síðustu viku um 10-11 og á morgun verður hann svo vakinn um 9.  Þó svo  að það sé ekkert mál að rétta hann við og tekur það yfirleitt bara einn dag, ákvað ég að gera þetta svona rólega, enda enn í fríi. 

Sibba mín passaði Trítlu fyrir okkur á þessu flakki okkar, Takk Elskan mín  hefðum sko ekki getað farið svona mikið ef þú hefðir ekki verið svona yndisleg og nennt að passa kvikindið ....:haha:

jæja er ekki að nenna meiru ..........þangað til næst...hvenær sem að það verður.....hafið það gott

kveðja

Ég


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan
Gullmolinn okkar
Allskonar kvikindi að syngja